Nýtt skipulag hjá Nýherja hf.

Nýherji hf. kynnir í dag nýtt skipulag fyrir starfsemi félagsins.


Með nýju skipulagi er félagið að auka hagkvæmni í rekstri og efla áherslu á þróun og sölu lausna, mannauðsmál og þjónustu við endursöluaðila.

Breytingin felur í sér stóraukna áherslu á sölustarf þar sem  tæknimenn og sölufólk vinna innan sama tekjusviðs að þróun lausna og í sölu- og markaðssetningu. 

Tekjusvið félagsins verða tvö, Lausnir og þjónusta og Heildsala og dreifing.

Tveir starfsmenn taka sæti í framkvæmdastjórn Nýherja í tengslum við breytingarnar;  Þorvaldur Þorláksson, framkvæmdastjóri Heildsölu og dreifingar og Dröfn Guðmundsdóttir, mannauðs-stjóri.

Í framkvæmdastjórn Nýherja sitja Finnur Oddsson, forstjóri, Gunnar Zoëga, framkvæmdastjóri Lausna og þjónustu, Þorvaldur Þorláksson, framkvæmdastjóri Heildsölu og dreifingar, Emil G. Einarsson, framkvæmdastjóri Viðskipta- og þjónustustjórnunar, Gunnar Petersen, framkvæmda-stjóri Fjármálasviðs, og Dröfn Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri.

Við þessar breytingar fækkar  í hópi Nýherja um 10 starfsmenn. Breytingar á skipulagi ná ekki til dótturfélaganna; TM Software ehf., Applicon ehf.  og Applicon AB.

„Aðgerðir sem gripið var til síðasta vetur, meðal annars með sölu á erlendum eignum Nýherja og aukinni áherslu á innlendan fyrirtækjamarkað, hafa skapað grundvöll til þess að skerpa enn frekar á starfsemi félagsins. Með skipulagsbreytingum nú munum við stórefla sölustarf félagsins, gera okkur betur í stakk búin til að takast á við örar breytingar í upplýsingatækni, efla nýsköpun innan fyrirtækisins og nýta betur sérþekkingu starfsfólks. Rekstur Nýherja er að styrkjast og nýtt skipulag er mikilvægt skref í átt að betri arðsemi og tækifærum til að gera enn betur,“ segir Finnur Oddsson forstjóri Nýherja.

Nýtt skipulag Nýherja tekur gildi frá 1. október næstkomandi.

 

Nánari upplýsingar:
Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, í síma +354 862 0310