Í framhaldi af ráðgefandi áliti EFTA dómstólsins þann 28. ágúst 2014 um verðtryggingu húsnæðislána á Íslandi vill Íslandsbanki koma eftirfarandi á framfæri: Ljóst er að útgefendur stærstu skuldabréfaflokka sem skráðir eru í íslensku kauphöllinni hafa aflétt skyldum af viðskiptavökum um viðskipti með bréf sín í dag, 28. ágúst 2014. Ætla má að því geti fylgt veruleg röskun á markaðsaðstæðum og viðskipti með önnur skuldabréf. Í því ljósi hefur Íslandsbanki ákveðið að tímabundið aflétta skyldum MP banka sem viðskiptavaka fyrir sértryggð skuldabréf Íslandsbanka í dag, 28. ágúst 2014. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925. [HUG#1851782]
Islandsbanki hf. : Skyldum viðskiptavaka með skuldabréf Íslandsbanka aflétt í dag, 28. ágúst
| Source: Íslandsbanki hf.