Í 35. viku 2014 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (Vís) 3.000.000 eigin hluti fyrir kr. 24.555.000 eins og hér segir: | |||||
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Vís eftir viðskipti |
26.8.2014 | 12:00 | 1.500.000 | 8,23 | 12.345.000 | 27.079.638 |
27.8.2014 | 14:13 | 1.500.000 | 8,14 | 12.210.000 | 28.579.638 |
Samtals | 3.000.000 | 24.555.000 | |||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 3. júní 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 16. maí 2014. | |||||
Vís hefur nú keypt samtals 28.303.114 hluti í félaginu sem samsvarar 51% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 242.232.981. Vís á nú samtals 1,14% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.502.757.040. | |||||
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. |