VIÐSKIPTAYFIRLIT ÁGÚST 2014 - NASDAQ OMX ICELAND


Reykjavík, 1. september, 2014 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir ágúst eru eftirfarandi:    

·       Viðskipti með hlutabréf í ágústmánuði námu 14.046 milljónum eða 702 milljónum á dag. Það er 16% hækkun frá fyrri mánuði, en í júlí námu viðskipti með hlutabréf 604 milljónum á dag. Þetta er 22% lækkun á milli ára (viðskipti í ágúst 2013 námu 896 milljónum á dag).          

·       Mest voru viðskipti með hlutabréf Icelandair Group (ICEAIR), 4.506 milljónir, Haga (HAGA), 2.092 milljónir, N1 (N1), 1.976 milljónir, Marel (MARL), 995 milljónir, og Eimskipafélags Íslands (EIM), 992 milljónir.

·       Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 1,0% milli mánaða og stendur nú í 1.155 stigum.

·       Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina, 27,5% (22,4% á árinu), Landsbankinn með 21,8% (22,8% á árinu), og Arion banki með 18,8% (27,9% á árinu).

·       Viðskipti með Landsbréf – LEQ kauphallarsjóðinn í ágústmánuði námu 528,9 milljónum, samanborið við 9,6 milljónir í júlí. 

Í lok ágúst voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkaði og First North Iceland og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 614 milljörðum króna (samanborið við 489 milljarða í ágúst 2013).

·       Viðskipti með skuldabréf námu 106 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 5,3 milljarða veltu á dag. Þetta er 176% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í júlí námu 1,9 milljörðum á dag), og 35% hækkun á  milli ára (viðskipti í ágúst 2013 námu 3,9 milljörðum á dag).

·       Alls námu viðskipti með ríkisbréf 86,2 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 16,7 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 19,1 milljarður, RIKB 20 0205, 11,6 milljarðar, RIKB 22 1026, 11,2 milljarðar, RIKB 16 1013, 11,0 milljarðar og RIKB 25 0612, 10,6 milljarðar.

·       Á skuldabréfamarkaði var MP banki með mestu hlutdeildina, 21,9% (20,6% á árinu), Íslandsbanki með 18,2% (19,2% á árinu) og Straumur fjárfestingabanki með 17,2% (15,4% á árinu).

·       Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,90% í ágúst og stendur í 1.041,3 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 1,44% í mánuðinum en sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,68%. 

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

Um NASDAQ OMX Group  

NASDAQ OMX (NASDAQ:NDAQ) er leiðandi þjónustuveitandi á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. NASDAQ OMX gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. NASDAQ OMX er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. NASDAQ OMX er heimili meira en 3,400 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 8,5 billjón Bandaríkjdala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu www.nasdaqomx.com

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja. 

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI:
          Kristín Jóhannsdóttir
          525 2844/ 868 9836
          kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com


Attachments

2014_0901_Viðskiptayfirlit ágúst 2014.pdf