Greiðslujöfnuður og erlend staða þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi 2014


"Þessi tilkynning er aðgengileg á vefsetri Seðlabanka Íslands. Hún hefur ekki verið birt opinberlega á Evrópska efnahagssvæðinu af hálfu Seðlabanka Íslands, sbr. skilgreiningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Vísað er til vefseturs Seðlabanka Íslands http://sedlabanki.is"

 

Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2014 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Seðlabanki Íslands hefur tekið í notkun nýja staðla fyrir hagtölur greiðslujafnaðar og erlenda stöðu þjóðarbúsins og er þetta fyrsta birtingin samkvæmt þeim. Breytingar vegna nýrra staðla varða einna helst vöru og þjónustu, þáttatekjur og rekstrarframlög, beina fjárfestingu, sértæk félög og lífeyris- og tryggingasjóði. Nánar er greint frá breytingunum í Upplýsingariti Seðlabankans sem kemur út í dag. 

Viðskiptajöfnuður mældist hagstæður um 2,9 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 5,6 ma.kr. óhagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður sem nemur 18,9 ma.kr. en þjónustujöfnuður hagstæður um 34,2 ma.kr. Jöfnuður frumþáttatekna mældist neikvæður um 8,9 ma.kr. og rekstrarframlög voru neikvæð sem nemur 3,4 ma.kr. Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var hagstæður um 1,9 ma.kr. samanborið við óhagstæðan um 0,7 ma.kr. fjórðunginn á undan.

Sjá hér í heild frétt nr. 29/2014 um greiðslujöfnuð og erlenda stöðu á öðrum ársfjórðungi 2014 

Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi 2014