Í ágúst flutti félagið um 354 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 18% fleiri en í ágúst á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 19% og sætanýting var 86,2% samanborið við 85,5% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 23,4% og voru þeir 55% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í ágúst.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 32 þúsund í ágúst og fækkaði um 2% á milli ára. Framboð félagsins í ágúst var dregið saman um 3% samanborið við ágúst 2013. Sætanýting nam 74,1% og jókst um 0,6 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 22% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 1% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um 3,9% milli ára. Herbergjanýting var 88,3% samanborið við 88,2% í ágúst í fyrra.
MILLILANDAFLUG | ÁGÚ 14 | ÁGÚ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 14 | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 353.826 | 300.164 | 18% | 1.811.906 | 1.573.484 | 15% |
Sætanýting | 86,2% | 85,5% | 0,7 %-stig | 80,9% | 80,5% | 0,4 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.223,3 | 1.031,3 | 19% | 6.652,8 | 5.678,9 | 17% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | ÁGÚ 14 | ÁGÚ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 14 | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 32.338 | 32.928 | -2% | 203.373 | 214.652 | -5% |
Sætanýting | 74,1% | 73,5% | 0,6 %-stig | 71,2% | 71,6% | -0,3 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 20,0 | 20,7 | -3% | 106,5 | 110,8 | -4% |
LEIGUFLUG | ÁGÚ 14 | ÁGÚ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 14 | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 87,5% | 90,9% | -3,4 %-stig | 94,8% | 90,5% | 4,3 %-stig |
Seldir blokktímar | 1.958 | 2.512 | -22% | 14.419 | 19.102 | -25% |
FRAKTFLUTNINGAR | ÁGÚ 14 | ÁGÚ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 14 | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 23.477 | 21.560 | 9% | 149.130 | 135.533 | 10% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.301 | 7.245 | 1% | 64.405 | 61.598 | 5% |
HÓTEL | ÁGÚ 14 | ÁGÚ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 14 | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 35.850 | 34.535 | 4% | 225.643 | 223.567 | 1% |
Seldar gistinætur | 31.647 | 30.472 | 4% | 175.670 | 167.059 | 5% |
Herbergjanýting | 88,3% | 88,2% | 0,1 %-stig | 77,9% | 74,7% | 3,1 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 8407010