Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 37. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.359.200 eigin hluti fyrir 33,4 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
8.9.2014 14:53 500.000 24,70 12.350.000 11.400.000
9.9.2014 14:24 500.000 24,55 12.275.000 11.900.000
11.9.2014 14:45 359.200 24,40 8.764.480 12.259.200
Samtals   1.359.200   33.389.480  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014.

TM hefur nú keypt samtals 12.259.200 hluti í félaginu sem samsvarar 58,4% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 315,9 milljónum króna. TM á nú samtals 1,61% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is