Islandsbanki hf. : Útgáfa sértryggðra skuldabréfa


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á verðtryggðum sértryggðum
skuldabréfum sem skráð eru á NASDAQ OMX Iceland og var flokkurinn ISLA CBI 20
stækkaður um 1.140.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,50%.

Heildarstærð ISLA CBI 20 er nú orðin 2,1 ma. kr. en alls hefur Íslandsbanki
gefið út sjö flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að upphæð 29,47 ma. kr. frá
fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta.  Heildareftirspurnin í útboðinu
var 1,48ma. kr., en 77% tilboða var tekið. Stefnt er á að bréfin verði tekin til
viðskipta í NASDAQ OMX Iceland þann 22. september næstkomandi. Viðskiptavakt
fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréf Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf
þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki
skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og
gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum,
sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur
um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út
ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187 / 844 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1856053]