Islandsbanki hf. : Breytingar á stjórn Íslandsbanka


Breytingar voru gerðar á stjórn Íslandsbanka á hluthafafundi sem fór fram í
dag.  Ákveðið hefur verið að stjórnarmenn verði sjö í stað níu áður. Samþykktum
bankans var breytt til samræmis við þá ákvörðun. Daniel Levin hætti í stjórninni
í lok ágúst síðastliðnum og nú mun María E. Ingvadóttir einnig láta af
stjórnarsetu. Þá kemur Margrét Kristmannsdóttir ný inn í varastjórn. 

[HUG#1858098]