VIÐSKIPTAYFIRLIT SEPTEMBER 2014 - NASDAQ ICELAND


Reykjavík, 1. október, 2014 – Nasdaq gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland fyrir september eru eftirfarandi:    

·       Viðskipti með hlutabréf í septembermánuði námu 17.295 milljónum eða 786 milljónum á dag. Það er 12% hækkun frá fyrri mánuði, en í ágúst námu viðskipti með hlutabréf 702 milljónum á dag. Þetta er 15% lækkun á milli ára (viðskipti í september 2013 námu 929 milljónum á dag).    

·       Mest voru viðskipti með hlutabréf Icelandair Group (ICEAIR), 5.036 milljónir, Eimskipafélags Íslands (EIM), 2.298 milljónir, N1 (N1), 2.082 milljónir, HB Granda (GRND), 1.823 milljónir og Marel (MARL), 1.499 milljónir.

·       Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 0,2% milli mánaða og stendur nú í 1.152 stigum.

·       Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina, 24,4% (22,6% á árinu), Arion banki með 21,9% (27,3% á árinu), og Landsbankinn með 18,6% (22,4% á árinu).

·       Viðskipti með Landsbréf – LEQ kauphallarsjóðinn í septembermánuði námu 37,3 milljónum, samanborið við 528,9 milljónir í ágúst. 

Í lok september voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkaði og First North Iceland og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 617 milljörðum króna (samanborið við 494 milljarða í september 2013).

·       Viðskipti með skuldabréf námu 170 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 7,7 milljarða veltu á dag. Þetta er 46% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í ágúst námu 5,3 milljörðum á dag), og 15% hækkun á  milli ára (viðskipti í september 2013 námu 6,7 milljörðum á dag).

·       Alls námu viðskipti með ríkisbréf 154,6 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 13,5 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 35,0 milljarðar, RIKB 20 0205, 29,0 milljarðar, RIKB 22 1026, 26,4 milljarðar, RIKB 16 1013, 18,3 milljarðar og RIKB 25 0612, 15,0 milljarðar.

·       Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina, 24,6% (20,0% á árinu), Straumur fjárfestingabanki með 21,8% (16,4% á árinu) og Landsbankinn með 19,6% (20,3% á árinu).

·       Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,61% í september og stendur í 1.047,7 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 1,33% í mánuðinum en sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,15%. 

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

 #

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja. 

         Kristín Jóhannsd
         kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com
         525 2844

Nasdaq logo