Stjórnarformaður N1 meðal ákærðra í SPRON máli


N1 hefur borist vitneskja um að gefin hafi verið út ákæra sérstaks saksóknara á hendur Margréti Guðmundsdóttur, stjórnarformanni félagsins, vegna atvika sem áttu sér stað á meðan hún sat í stjórn SPRON á árinu 2008. Félagið mun afla sér upplýsinga og fara yfir málið á næstu dögum.