Yfirlýsing stjórnar N1 hf. vegna ákæru sérstaks saksóknara


Stjórn N1 hf. hefur yfirfarið hæfi Margrétar Guðmundsdóttur stjórnarformanns félagsins með tilliti til útgáfu ákæru embættis sérstaks saksóknara á hendur henni. Að höfðu samráði við kauphöll Nasdaq OMX Ísland og með vísan til reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga gerir stjórn ekki athugasemdir við áframhaldandi stjórnarstörf Margrétar fyrir félagið og nýtur hún fulls trausts stjórnarinnar nú sem hingað til.