Standard & Poor's hefur endurskoðað horfur Íslandsbanka úr stöðugum í jákvæðar og staðfest lánshæfismat bankans sem er BB+/B. S&P segir jákvæðar horfur Íslandsbanka endurspegla jákvæðar horfur á íslenska ríkið og skoðun þeirra á að bankakerfið sé að þróast til betri vegar. Þann 18. júlí 2014 breyttu þeir horfum sínum á íslenska ríkið í jákvæðar vegna aukins hagvaxtar og lækkun ríkisskulda. Fyrirtækið býst við því að gæði eignasafns bankans fari batnandi á næstu tveimur árum og að bankinn nái að minnka áhættu tengda fasteignum og hlutabréfum á efnahagsreikningi sínum. S&P vekur líka athygli á því að vegna stærðar eiginfjárgrunns bankans gæti það verið honum í hag ef S&P myndi hækka lánshæfismat ríkisins og lækka áhættumat tengt efnahagslegu ójafnvægi í bankakerfinu. Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri Íslandsbanka: "Þessi niðurstaða er í takti við væntingar okkar í ljósi breytinga á horfum íslenska ríkisins síðastliðið sumar. Það er ánægjulegt að fá viðurkenningu á þeim árangri sem hefur náðst, bæði í íslensku efnahagslífi sem og í endurskipulagningu lánasafns bankans. Þetta mun vonandi hafa jákvæð áhrif á aðgengi okkar að erlendu fjármagni sem gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur." Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, gudbjorg.bjornsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4752. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, gudny.herbertsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 3678. [HUG#1862944]