Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í gær útboði á víxlum til sex mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 3.680 milljónir króna og tekið var tilboðum fyrir 2.120 milljónir króna á 6,00% flötum vöxtum. Stefnt er á að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Íslandi.


Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.