Islandsbanki hf. : Flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á útistandandi flokkum óverðtryggðra
sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq Iceland.  ISLA CB 16 var
stækkaður um 350.000.000  kr. á ávöxtunarkröfunni 6,25% en ISLA CB 19 um
860.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 6,95%.

Heildarstærð ISLA CB 16 útgáfunnar er nú orðin 2,82 ma. kr. og ISLA CB 19 er
orðin 1,40 ma. kr. Alls hefur Íslandsbanki gefið út sjö flokka sértryggðra
skuldabréfa samtals að upphæð 30,68 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum
bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta.  Heildareftirspurnin í útboðinu
var 2,06 ma. kr., en 59% tilboða var tekið. Stefnt er á að bréfin verði tekin
til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 24. október næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir
alla flokka sértryggðra skuldabréf Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf
þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki
skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og
gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum,
sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur
um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út
ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir,
    gudbjorg.bjornsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir,
    gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is og í síma 844 3678.


[HUG#1863904]