Birting uppgjörs 3. ársfjórðungs 2014


Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung ársins 2014, fimmtudaginn 30. október 2014. Opinn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 31. október 2014 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í Víkingasal 4+5. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, munu kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt helstu stjórnendum. Morgunverður verður í boði frá kl. 8:00.  

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is