Hlutdeildarskírteini kauphallarsjóðsins Landsbréf – LREAL (auðkenni: LREAL) hljóta athugunarmerkingu


Hlutdeildarskírteini kauphallarsjóðsins Landsbréf – LREAL (auðkenni: LREAL) hafa hlotið athugunarmerkingu með vísan til tilkynningar útgefanda sem birt var opinberlega dags. 23. október 2014. Athugunarmerkingin er framkvæmd með vísan til ákvæðis 8.3 í reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga.