Leiðrétting: Uppgjör þriðja ársfjórðungs – kynningarfundur 30. október kl. 8:30 - Frétt birt 2014-10-23 17:43:49


Leiðrétting: Önnur málsgrein var: Markaðsaðilum er boðið til kynningarfundar á afkomu félagsins á fyrri árshelmingi kl. 8:30 fimmtudaginn 30. október. Hið rétta er: Markaðsaðilum er boðið til kynningarfundar á afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi kl. 8:30 fimmtudaginn 30. október.

 

Tryggingamiðstöðin hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs eftir lokun markaða miðvikudaginn 29. október 2014.

 

Markaðsaðilum er boðið til kynningarfundar um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi

kl. 8:30 fimmtudaginn 30. október.  Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að

Síðumúla 24. 4. hæð.  Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og

svara spurningum.

 

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins

www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf

kynningarfundar en fundurinn verður einnig aðgengilegur í gegnum

fjarfundabúnað.