VÍS: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs þann 30. október og kynningarfundur um uppgjörið 31. október n.k.


Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs ársins 2014, fimmtudaginn 30. október næstkomandi eftir lokun markaðar.

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi og afkomuna það sem af er ári verður haldinn morguninn eftir, þann 31. október í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð, kl. 08:30. Léttur morgunverður frá 08:15.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.

Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins:

http://vis.is/fjarfestar