Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs ársins 2014, fimmtudaginn 30. október næstkomandi eftir lokun markaðar.
Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi og afkomuna það sem af er ári verður haldinn morguninn eftir, þann 31. október í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð, kl. 08:30. Léttur morgunverður frá 08:15.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.
Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins: