HB Grandi - Samruni fjárhagslega tengdra aðila


Hluthafar Svöluhrauns ehf. og Fiskveiðihlutafélagsins Venusar hf. staðfestu á hluthafafundi sem haldinn var í gærkvöldi samruna félaganna tveggja í samræmi við samrunaáætlun dags. 15. ágúst 2014. Með samrunanum yfirtekur Fiskveiðihlutafélagið Venus hf. (yfirtökufélag) einkahlutafélagið Svöluhraun (yfirtekið félag) og hið sameinaða félag mun starfa framvegis undir nafni og kennitölu yfirtökufélagsins.

Kristján Loftsson, stjórnarformaður HB Granda hf., er stjórnarformaður Svöluhrauns ehf. og Fiskveiðihlutafélagsins Venusar hf. og Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, er jafnframt stjórnarmaður í báðum félögum. Svöluhraun ehf. og Fiskveiðihlutafélagið Venus hf. teljast því til fjárhagslega tengdra aðila fruminnherja félagsins.

Fiskveiðihlutafélagð Venus hf. á hlutafé að nafnverði kr. 11.755.937 í HB Granda, eða 0,65% af heildarhlutafé félagsins. Fiskveiðihlutafélagið Venus hf. á 39,50% eignarhlut í Hval hf. Hvalur hf. á 99,8% eignarhlut í í Vogun hf. Vogun hf. á hlutafé að nafnverði kr. 610.661.942 eða 33,51% af heildarhlutafé HB Granda. Vogun hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. eiga auk þess ráðandi hlut í Hampiðjunni hf. en Hampiðjan hf. á hlutafé að nafnverði kr. 160.074.981, eða 8,78% af heildarhlutafé HB Granda.