Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. árið 2015


Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2015 kl. 16:00.

Samkvæmt samþykktum félagsins skulu eftirfarandi mál tekin fyrir á aðalfundinum:

1.      Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár.

2.      Ársreikningur félagsins fyrir síðastliðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar.

3.      Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á síðastliðnu starfsári.

4.      Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.

5.      Kosning stjórnar félagsins.

6.      Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál sem löglega eru upp borin.

Óski hluthafi að fá tiltekið mál til meðferðar á aðalfundinum skal hann hafa gert kröfu um það til félagsstjórnar með skriflegum eða rafrænum hætti á netfangið stjorn@tm.is fyrir fimmtudaginn 12. febrúar 2015.  Kröfunni skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til félagsstjórnar.

Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.