Vátryggingafélag Íslands hf. - árshlutauppgjör


Afkoma fyrstu níu mánuði ársins 2014

Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið janúar til september 2014 var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 30. október 2014.  Árshlutareikningurinn hefur ekki verið kannaður eða endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.

Helstu niðurstöður

· 906 m.kr. hagnaður varð af rekstri félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 2.043 m.kr. hagnað á sama tímabili árið 2013.

· Iðgjöld tímabilsins námu 11.853 m.kr. samanborið við 12.029 m.kr. á sama tímabili árið 2013.

· Framlegð af vátryggingarekstri var 20 m.kr. samanborið við 461 m.kr. fyrstu níu mánuði ársins 2013. 

· Samsett hlutfall var 100,8% samanborið við 97,1% á sama tímabili 2013.

· Fjármunatekjur námu 1.426 m.kr. samanborið við 2.457 m.kr. fyrstu níu mánuði 2013.

· Heildareignir í lok september námu 47.274 m.kr. samanborið við 46.254 m.kr. í árslok 2013.

· Fjárfestingaeignir félagsins námu 35.174 m.kr. samanborið við 36.581 m.kr. í árslok 2013.

· Eigið fé félagsins nam 15.392 m.kr. í lok tímabilsins samanborið við 16.624 m.kr. í árslok 2013.

· Arðsemi eigin fjár var 7,6% á ársgrunni samanborið við 17,6% arðsemi á sama tímabili árið 2013.

· Eiginfjárhlutfall var 32,6% í lok tímabilsins.

· Gjaldþolshlutfall samstæðunnar var 3,76 í lok september og hefur hækkað úr 3,74 frá áramótum.

· Á fyrri helmingi ársins greiddi félagið 1.831 m.kr. í arð til hluthafa og  keypti eigin bréf að nafnverði 36 m.kr. fyrir um 307 m.kr.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri

„Afkoma félagsins af fjárfestingastarfsemi á þriðja ársfjórðungi var ágæt og í samræmi við væntingar en ávöxtun fjórðungsins var 9,1% reiknuð á ársgrunni.  Þegar horft er til vátryggingareksturs á fjórðungnum þá var þróun iðgjaldatekna jákvæð og jukust iðgjöld um 3,9% frá öðrum ársfjórðungi og voru einnig hærri en á sama fjórðungi 2013.  Tjónaþunginn var talsverður og var eigið tjónahlutfall 81,8% sem er hærra en það hefur verið um langt skeið og var samsett hlutfall á fjórðungnum 102,7%.  Fyrstu níu mánuði ársins er samsett hlutfall 100,8%, en á sama tíma í fyrra var samsetta hlutfallið 97,1%.   Tjónaþungi á þriðja fjórðungi og það sem af er árinu er meiri en búist var við í upphafi árs og skýrist hann annars vegar af fjölgun tjóna  milli ára og hins vegar af  stóru tjóni sem varð í byrjun júlí. 

Þróun á fjármálamörkuðum fyrstu níu mánuði ársins leiðir af sér að arðsemi af fjárfestingasafni félagsins var nokkuð undir væntingum stjórnenda og verulega lakari en á sama tímabili 2013.  Meginskýringuna er að finna í þróun á mörkuðum fyrir verðtryggð skuldabréf og skráð hlutabréf.  Ávöxtun þessara eigna er engu að síður umfram þróun helstu skuldabréfa- og hlutabréfavísitalna á tímabilinu. 

Áherslur stjórnenda á að einfalda starfsemina og auka skilvirkni í rekstri hafa skilað sér í því að rekstrarkostnaður hefur nánast staðið í stað þegar horft er til kostnaðar á sama tímabili 2013.“

Ný vátryggingalöggjöf – Solvency II

Félagið vinnur að innleiðingu á væntanlegri vátryggingalöggjöf, Solvency II, sem taka á gildi frá og með 1. janúar 2016. Löggjöfin felur meðal annars í sér umtalsverða breytingu á því hvernig áhætta í starfsemi vátryggingafélaga er mæld og hvernig gjaldþol og gjaldþolskrafa eru ákvörðuð. Gjaldþolskrafa skv. Solvency II er reiknuð sem áhættumiðað mat á heildaráhættu félagsins. Megin breyting á reiknuðu gjaldþoli eftir Solvency II felst í að staða vátryggingaskuldar umfram varfærnislegt mat telst til gjaldþols þó að frádregnum tekjuskatti. Þetta hefur í för með sér að gjaldþol félagsins reiknast hærra samkvæmt Solvency II. Félagið hefur reiknað gjaldþol og gjaldþolskröfu miðað við síðustu áramót. Þá reiknaðist gjaldþol skv. Solvency II 17,9 milljarðar króna og gjaldþolskrafa 9,2 milljarðar króna sem gefur gjaldþolshlutfall 1,9. Gjaldþol reiknast því um 4 milljörðum króna hærra samkvæmt Solvency II en í núverandi löggjöf að teknu tilliti til tekjuskatts. Þessi útreikningur miðast við þær forsendur og upplýsingar sem nú liggja fyrir um væntanlega löggjöf.

Samhliða innleiðingu á Solvency II er unnið að því að setja félaginu ný markmið um gjaldþol og arðgreiðslustefnu.  Félagið mun upplýsa um niðurstöður þessarar vinnu þegar henni er lokið og allar nauðsynlegar upplýsingar varðandi nýja löggjöf liggja fyrir.

Horfur

Stefna félagsins er að sækja og rækta samband sitt við núverandi og nýja viðskiptavini og viðhalda markaðsstöðu sinni.  Áhersla er á áhættumat og verðlagningu vátryggingaráhættu ásamt öflugu forvarnarstarfi til að fækka slysum og tjónum.  Markmið félagsins er að auka ánægju viðskiptavina enn frekar á sama tíma og unnið er að því að einfalda og auka skilvirkni í starfsemi félagsins og lækka kostnað.  Markmið félagsins er að samsett hlutfall á árinu 2014 verði lægra en það var á árinu 2013 en afkoma fyrstu níu mánaða ársins hafa dregið úr líkum á að þetta markmið náist. Jafnframt er áhersla á trausta langtímaávöxtun á fjárfestingar í samræmi við fjárfestingastefnu félagsins.

Um VÍS

VÍS er leiðandi fyrirtæki á sviði vátrygginga á Íslandi. VÍS nýtur sterkrar stöðu á íslenskum vátryggingamarkaði með liðlega þriðjungs markaðshlutdeild. Félagið býður upp á víðtæka vátryggingaþjónustu til viðskiptavina sinna þar sem rík áhersla er lögð á viðeigandi ráðgjöf um vátryggingavernd, gæði í þjónustu, skilvirkni og sveigjanleika.

Meginstarfsemi VÍS er á sviði skaðatrygginga og líftrygginga og starfrækir félagið 39 þjónustuskrifstofur víðsvegar um land.  VÍS leggur áherslu á að starfsmenn og umboðsmenn félagsins vinni eftir grunngildum þess sem eru umhyggja, fagmennska og árangur.

Hlutverk VÍS

VÍS er traust, leiðandi og framsækið þjónustufyrirtæki sem veitir viðskiptavinum viðeigandi vátryggingavernd og stuðlar að öryggi í samfélaginu með öflugum forvörnum.

Kynningarfundur

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn hjá VÍS í Ármúla 3, 5. hæð, þann 31. október n.k. kl. 8:30. Þar kynnir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS afkomu félagsins og svarar spurningum.

Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu VÍS: www.vis.is

Fjárhagsdagatal

Viðburður                           Dagsetning:

3. ársfjórðungur 2014   30. október 2014

Ársuppgjör 2014           26. febrúar 2015

Aðalfundur 2015              12. mars 2015

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi fjarfestatengsl@vis.is.


Attachments

Samstæða jan-sept 2014.pdf Fréttatilkynning um afkomu VÍS 9M 2014.pdf