Í 44. viku 2014 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (Vís) 8.250.000 eigin hluti fyrir kr. 68.010.000 eins og hér segir: | |||||
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Vís eftir viðskipti |
28.10.2014 | 10:19 | 1.500.000 | 8,40 | 12.600.000 | 43.895.801 |
28.10.2014 | 10:56 | 750.000 | 8,34 | 6.255.000 | 44.645.801 |
29.10.2014 | 15:22 | 1.500.000 | 8,20 | 12.300.000 | 46.145.801 |
29.10.2014 | 15:22 | 750.000 | 8,20 | 6.150.000 | 46.895.801 |
30.10.2014 | 14:25 | 1.500.000 | 8,18 | 12.270.000 | 48.395.801 |
31.10.2014 | 09:30 | 1.500.000 | 8,20 | 12.300.000 | 49.895.801 |
31.10.2014 | 15:19 | 750.000 | 8,18 | 6.135.000 | 50.645.801 |
Samtals | 8.250.000 | 68.010.000 | |||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 3. júní 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 16. maí 2014. | |||||
Vís hefur nú keypt samtals 50.369.277 hluti í félaginu sem samsvarar 92% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 423.601.502. Vís á nú samtals 2,02% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.502.757.040. | |||||
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. |