VIÐSKIPTAYFIRLIT OKTÓBER 2014 – NASDAQ ICELAND


Reykjavík, 3. nóvember, 2014 – Nasdaq gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir október eru eftirfarandi:    

·       Viðskipti með hlutabréf í októbermánuði námu 32.244 milljónum eða 1.402 milljónum á dag. Það er 78% hækkun frá fyrri mánuði, en í september námu viðskipti með hlutabréf 786 milljónum á dag. Þetta er 64% hækkun á milli ára (viðskipti í október 2013 námu 855 milljónum á dag).    

·       Mest voru viðskipti með hlutabréf Marel (MARL), 6.301 milljón, Icelandair Group (ICEAIR), 6.174 milljónir, Vátryggingarfélags Íslands (VIS), 6.150 milljónir, Eimskipafélags Íslands (EIM), 2.352 milljónir og Haga (HAGA), 1.880 milljónir.

·       Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 2,97% milli mánaða og stendur nú í 1.186 stigum.

·       Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 27,5% (27,4% á árinu), Íslandsbanki með 18,6% (22,0% á árinu), og Landsbankinn með 14,8% (21,3% á árinu).

·       Viðskipti með Landsbréf – LEQ kauphallarsjóðinn í októbermánuði námu 2,0 milljónum, samanborið við 37,3 milljónir í september.  

Í lok október voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkaði og First North Iceland og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 637 milljörðum króna (samanborið við 523 milljarða í október 2013).

·       Viðskipti með skuldabréf námu 119 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 5,2 milljarða veltu á dag. Þetta er 33% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í september námu 7,7 milljörðum á dag), en óbreytt frá fyrra ári (viðskipti í október 2013 námu 5,2 milljörðum á dag).

·       Alls námu viðskipti með ríkisbréf 93,8 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 20,1 milljarði. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 20,9 milljarðar, RIKB 25 0612, 17,4 milljarðar, RIKB 22 1026, 15,4 milljarðar, RIKB 20 0205, 15,0 milljarðar og HFF 150224, 11,6 milljarðar.

·       Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 26,2% (20,9% á árinu), Íslandsbanki með 17,7% (19,8% á árinu) og Straumur fjárfestingabanki með 16,1% (16,3% á árinu).

·       Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,85% í október og stendur í 1.056,5 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,44% í mánuðinum en sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,83%. 

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq  (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,400 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 8,5 billjón Bandaríkjadala. Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallin, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing og Nasdaq Broker Services eru vörumerkin fyrir Nasdaq OMX Copenhagen A/S, Nasdaq OMX Helsinki Ltd., Nasdaq OMX Iceland hf., Nasdaq OMX Riga, AS, Nasdaq OMX Stockholm AB, Nasdaq OMX Tallinn AS, Nasdaq OMX Vilnius, Nasdaq OMX Clearing AB, Nasdaq OMX Broker Services AB. Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga og Nasdaq Vilnius. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu www.nasdaqomx.com

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI
          Kristín Jóhannsdóttir
          525 2844 / 868 9836
          kristin.johannsdottir@nasdaq.com


Attachments

2014_1103_Viðskiptayfirlit október 2014.pdf