Þrotabú Roku ehf. fellir niður dómsmál á hendur Nýherja hf.


Um miðjan janúar 2011 höfðaði þrotabú Roku ehf. mál á hendur Nýherja hf. til riftunar á kaupsamningnum um ráðstöfun tiltekinna eigna samhliða því að Nýherji hf. tók yfir rekstur félaganna Skyggnis ehf., TMS Origo ehf., EMR ehf., Vigor ehf., Viðju ehf., TM Software ITP ehf. og Theriak Medication Management ehf., úr höndum dótturfélags síns, Roku ehf. (áður TM Software ehf.).

Nýherji hefur frá upphafi hafnað kröfum þrotabúsins og hefur haldið uppi vörnum gegn þeim. Nýherji hf. átti umtalsverðar kröfur á hendur Roku ehf. sem félagið lýsti við gjaldþrotaskiptin. Jafnframt hefur félagið lagt í varasjóð til að mæta hugsanlegu fjárhagstjóni vegna dómsmálanna.

Á undanförnum mánuðum hafa stjórnendur Nýherja átt í viðræðum við þrotabú Roku ehf. og kröfuhafa þess um sátt í fyrrnefndum dómsmálum. Úr varð að fyrir skemmstu ákvað stjórn Nýherja að bjóða fram fjármögnun á nauðasamningi Roku ehf. við kröfuhafa sína sem fæli í sér greiðslu á tæpum 37% af höfuðstól samningskrafna. Frumvarp að nauðasamningi hefur hlotið samþykki kröfuhafa og var staðfest af Héraðsdómi Reykjaness þann 21. október sl. Í gær, þann 4. nóvember voru öll ofangreind riftunarmál þrotabús Roku ehf. á hendur Nýherja hf. felld niður.

Staðfesting nauðasamnings Roku ehf. og niðurfelling dómsmála á hendur félaginu mun hafa óveruleg áhrif á rekstur og efnahag Nýherja hf. en eyðir þeirri fjárhagslegri áhættu sem möguleg neikvæð útkoma dómsmálanna hefði getað haft á félagið.

Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja hf.:

„Á undanförnum misserum höfum við unnið eftir áætlun að minnka óvissu og lágmarka sveiflur í rekstri félagsins. Samkomulag við kröfuhafa Roku ehf. og niðurfellingu á dómsmálum á hendur Nýherja hf.er mikilvægt skref í þeirri vegferð. Áfram verður unnið í að bæta afkomu og styrkja eiginfjárstöðu og horfum við þar m.a til skipulags og uppbyggingar samstæðunnar. “

 

Nánari upplýsingar:
Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, í síma +354 862 0310 og
Gunnar Petersen, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs í síma +354 825 9001