Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2014 eftir lokun markaða þriðjudaginn 18. nóvember.
Sjóvá býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi 2014 kl. 8.30 miðvikudaginn 19. nóvember í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri félagsins mun kynna uppgjörið og svara spurningum.
Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef félagsins www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst.