Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar 2015 og áætlun fyrir 2016-2018


Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar lögð fram

 

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag. Þá var einnig lögð fram langtímaáætlun fyrir tímabilið 2016 til 2018.

Í áætluninni kemur fram að A-hluti bæjarsjóðs verður rekinn með 106 milljón króna rekstrarafgangi á næsta ári.

 

Sé skoðuð niðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar þá verður hún rekin með 357 milljón króna rekstrarafgangi á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætluninni.

 

„Fjárhagsáætlunin sýnir að staða Kópavogs er sterk. Hins vegar er ljóst að ef þessi áætlun er borin saman við þá síðustu að þeir kjarasamningar sem hafa verið gerðir á árinu við fjölmörg stéttarfélög koma til með að hafa veruleg áhrif á reksturinn á næsta ári.

 

Engu að síður er rekstrarafgangur í heildina séð vel við unandi. Þá er ekkert gert ráð fyrir óreglulegum tekjum eins og sölu lóða sem að öllum líkindum mun bæta stöðuna enn frekar. Þá heldur skuldahlutfall áfram að lækka sem er mjög jákvætt,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar.

 

Gangi áætlunin eftir verður skuldaviðmið bæjarins áramótin 2015/2016 166,6%. Gert er ráð fyrir að Kópavogsbær komist undir 150% viðmið árið 2017. Um síðust áramót var skuldaviðmiðið 185,1 %.

 

Meðfylgjandi er fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 og langtímaáætlun fyrir árin 2016 til 2018.


Attachments

Þriggja ára áætlun - fyrri umræða.pdf Áætlun 2015-fyrri umræða.pdf