HS Orka hf. leggur fram árshlutareikning fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2014


Fréttatilkynning

 

 

 

Reykjanesbær, 12. Nóvember 2014

 

 

HS Orka hf. leggur fram árshlutareikning fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2014

 

 

Stjórn HS Orku hf. samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2014. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

  • Rekstartekjur fyrirtækisins námu 5.311 milljónum á tímabilinu, samanborið við 5.142 m.kr. á sama tímabili 2013. Hagnaður tímabilsins af reglulegri starfsemi nam 1.198 m.kr. samanborið við 302 m.kr. tap á sama tímabili 2013. Heildarhagnaður var 1.142 m.kr. samanborið við 360 m.kr. tap á sama tímabili 2013.
  • EBITDA er alls um 1.963 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins 2014 en var 1.907 m.kr. á sama tímabili 2013.
  • Eiginfjárhlutfall 30. september 2014 var mjög sterkt eða 60,7% en var í árslok 2013 58,0%.
  • Breyting á virði afleiða (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) er neikvæð um 177 m.kr. en var neikvæð um 3.043 m.kr. á sama tímabili á árinu 2013. Á móti kemur 112 m.kr. gengishagnaður á árinu 2014, en á sama tímabili í fyrra var þessi hagnaður 1.008 m.kr.
  • Regluleg starfsemi fyrirtækisins gengur vel og hækkaði EBITDA samanborið við sama tímabil í fyrra um 3% eða sem nam 56 m.kr. Tekjur jukust á milli tímabila eða um 169 m.kr. Þá hækkaði rekstrarkostnaður um 4% eða sem nemur 158 m.kr. milli sömu tímabila. Tekjur hafa aukist talsvert á smásölumarkaði og hafa gert gott betur en að mæta lækkun álverðs sem hefur dregið úr tekjum af stórnotendum á móti.  Á kostnaðarhliðinni hefur rekstrarkostnaður orkuvera lækkað töluvert, orkukaup hafa aukist nokkuð og flutningskostnaður aukist lítillega. Þá hefur skrifstofu og stjórnunarkostnaður hækkað, fyrst og fremst vegna kostnaðar við undirbúnings gerðardómsmáls vegna orkusölusamnings við Norðurál í Helguvík.

 

 

Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hf. í síma 855 9301.


Attachments

HS Orka Financial Statement 30 September 2014.pdf