Islandsbanki hf. : Afkoma fyrir 3. ársfjórðung birt þann 20. nóvember


Íslandsbanki mun birta afkomu 3. ársfjórðungs 2014 fyrir opnun markaða
fimmtudaginn 20. nóvember 2014.

Síðar þann dag kl. 14.00 mun bankinn bjóða markaðsaðilum upp á símafund.
Fundurinn fer fram á ensku og farið verður yfir helstu atriði í íslenskum
efnahagsmálum og afkomu bankans.

Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með því að senda póst á
ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til
skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla,
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér:
http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.



Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
    440 4752.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í
    síma 440 3678.


[HUG#1870880]