Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 20 0205 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:
RIKB 20 0205:
Alls bárust 29 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.150 m.kr. að nafnverði. 23 tilboðum var tekið fyrir 5.850 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,900 (6,04% ávöxtunarkröfu).
Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 18. nóvember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 19. nóvember 2014.