Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2014

Kynningarfundur 21. nóvember 2014


Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs eftir lokun markaða fimmtudaginn 20. nóvember 2014.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon, forstjóri, og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánaða 2014.           

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 21. nóvember 2014 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá kl. 8:15.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.