Islandsbanki hf. : Þriðja árshlutauppgjör 3F2014



HELSTU NIÐURSTÖÐUR

9 MÁNUÐIR
  * Hagnaður eftir skatta var 18,2 ma. kr. á fyrstu 9 mánuðum ársins samanborið
    við 15,4 ma. kr. á sama tímabili 2013
  * Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 13,8% samanborið við 13,4% á sama
    tímabili 2013, þrátt fyrir að eigið fé bankans hækkaði um 14% á milli ára úr
    160 ma. kr. í 181 ma. kr.
  * Hreinar vaxtatekjur voru 20,6 ma. kr. (9M2013: 21,9 ma. kr.)
  * Hreinar þóknanatekjur voru 8,5 ma. kr. (9M2013: 7,6 ma. kr.)  Aukninguna má
    að mestu rekja til viðskiptabankasviðs, markaða, eignastýringar og
    dótturfélaga.
  * Kostnaðarhlutfall bankans var 54,4% (9M2013: 58,4%); kostnaðaraðhald er
    farið að bera árangur.
  * Eiginfjárhlutfall  var áfram sterkt eða 29,4% samanborið við 28,4% í lok árs
    2013, og eiginfjárhlutfall A (Tier 1) var 26,3% (árslok 2013: 25,1%).
  * LPA hlutfallið var 7,0% (árslok 2013: 8,3%). Hlutfall vanskila umfram 90
    daga var 3,1% (árslok 2013: 3,5%).
  * Heildareignir voru 931 ma. kr. (árslok 2013: 866 ma. kr.), sem er 7,5%
    aukning frá áramótum.

ÞRIÐJI ÁRSFJÓRÐUNGUR
  * Hagnaður eftir skatta var 3,5 ma. kr. á 3. ársfjórðungi samanborið við 4,2
    ma. kr. á sama tímabili 2013
  * Arðsemi eigin fjár var 7,9% á fjórðungnum (3F2013: 10,6%).
  * Hreinar vaxtatekjur voru 7,1 ma. kr. á fjórðungnum (3F2013: 7,4 ma. kr.)
    Hreinn vaxtamunur var 3,1% (3F2013: 3,5%) sem er í takt við langtíma
    áætlanir bankans.
  * Hreinar þóknanatekjur voru 2,8 ma. kr. (3F2013: 2,5 ma. kr.) sem er 16%
    hækkun milli ára.
  * Heildar eignir voru 931 ma. kr. (júní 2014: 908 ma. kr.) og jukust um 3% á
    fjórðungnum.
  * Heildarinnlán jukust í 561 ma. kr. úr 543 ma. kr. í lok júní 2014 sem má
    rekja til eðlilegra sveiflna í innlánum frá viðskiptavinum og
    fjármálastofnunum.


Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

"Ég er ánægð með afkomuna á fyrstu 9 mánuðum ársins sem er í samræmi við
áætlanir. Það verður þó áframhaldandi áskorun að styrkja grunnreksturinn með
kostnaðaraðhaldi og auknum tekjuvexti. Við höfum lagt áherslu á að auka
hagkvæmni í rekstri en lækkun á stjórnunarkostnaði var 6,4% milli ára. Útlán til
viðskiptavina hafa  aukist um 54 milljarða króna á þessu ári.
Íslandsbanki hefur alltaf verið sterkur á sviði vöruþróunar á fjármálamarkaði og
lagt áherslu á að bregðast við þörfum viðskiptavina á því sviði. Gott dæmi um
þetta eru svokölluð fyrstukaupalán sem við kynntum á fjórðungnum en það eru
fasteignalán á betri kjörum fyrir þá sem eru að kaupa húsnæði í fyrsta skipti.
Við erum einnig stöðugt að þróa  Íslandsbanka Appið með nýjum aðgerðum og sjáum
100% aukningu í fjölda færslna frá áramótum en samtals hafa 45 þúsund notendur
hlaðið Appinu niður.
Um 5.000 viðskiptavinir Íslandsbanka eiga rétt á leiðréttingu á verðtryggðum
húsnæðislánum sínum í tengslum við aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Leiðréttingin er
fjármögnuð með sérstökum bankaskatti og gerir Íslandsbanki ráð fyrir að greiða
um 2,4 milljarða króna í þann skatt á árinu. Mikilvægt er að þetta verði
tímabundin skattheimta eins og kynnt hefur verið. Aukin skattheimta skekkir mjög
samkeppnishæfni íslenskra banka við erlendar fjármálastofnanir í þjónustu við
stærri fyrirtæki landsins."


SÍMAFUNDUR Á ENSKU

Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður
yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast
skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og
aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir
fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla,
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
440 4752.

Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
440 3678.




[HUG#1872942]

Attachments

ISB 3F14 afkomutilkynning.pdf íslandsbanki hf. -  Interim Financial Statements.pdf 3Q14 Investor Presentation.pdf