Í 47. viku 2014 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. („VÍS“) 1.592.830 eigin hluti fyrir kr. 14.080.617 eins og hér segir: |
|||||
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Vís eftir viðskipti |
21.11.2014 | 14:00 | 1.592.830 | 8,84 | 14.080.617 | 55.276.524 |
Samtals | 1.592.830 | 14.080.617 |
Vísað er til tilkynningar Vátryggingafélags Íslands hf. til Aðalmarkaðar um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess, dags. 16. maí 2014. Eins og greint var frá í þeirri tilkynningu var áætlað að kaupa að hámarki 2,2% af útgefnu hlutafé félagsins eða sem samsvarar að nafnverði kr. 55.000.000 hlutum. Samkvæmt áætluninni skyldi fjárhæð endurkaupanna þó ekki verða hærri en 500 milljónir króna. Reglubundnar tilkynningar til markaðarins um kaup VÍS á eigin bréfum hafa upplýst um framgang kaupanna.
Heimild til endurkaupa gilti fram að aðalfundi félagsins 2015.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar VÍS er nú lokið. Samtals hafa verið keyptir kr. 55.000.000 hlutir að nafnverði í félaginu og nemur kaupverð hinna keyptu hluta samtals kr. 462.808.526. Endurkaupáætlunin var framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi: fjarfestatengsl@vis.is.