Árshlutareikningur Regins hf. fyrstu níu mánuði ársins 2014


 

Árshlutareikningur Regins hf. 1. janúar til 30. september 2014 var samþykktur af stjórn þann 25. nóvember.

  • Rekstrartekjur námu 3.458 milljón króna.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 2.183 milljónir króna.
  • Hagnaður eftir  tekjuskatt nam 1.182 milljónum króna.
  • Fjárfestingareignir voru metnar á 52.140 milljónir króna
  • Vaxtaberandi skuldir voru 32.251  milljónir króna í lok tímabilsins samanborið við 24.837 milljónir kr. við árslok 2013.
  • Handbært fé frá rekstri nam 1.049 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall er 32%.
  • Hagnaður á hlut var 0,86 samanborðið við 0,84 árið áður.

 

Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.) Fjöldi hluthafa við lok september er 647.

Rekstur og afkoma

Afkoma Regins á tímabilinu var góð og í ágætu samræmi við áætlun félagsins. Rekstrartekjur námu 3.458 milljón króna og þar af námu leigutekjur 3.065 milljónum króna. Hækkun leigutekna frá sama tíma fyrra árs er um 18%. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir var 2.183 milljónum króna og hefur aukist um 19% frá sama tíma fyrra árs.

Eignasafn og efnahagur

Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Í lok september 2014 átti Reginn 53 fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var um 223 þúsund fermetrar. Útleiguhlutfall fasteignasafnsins var 97% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi.

Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers uppgjörtímabils í tengslum við gerð árshluta og ársreiknings og við matið er stuðst við núvirt framtíðar sjóðsflæði einstakra eigna. Matsbreyting á tímabilinu er 630 milljónir króna.

   

Kynning

Samhliða birtingu á þessu uppgjöri boðar Reginn til opins kynningarfundar miðvikudaginn 26. nóvember kl. 08:30 í  Listasafni Íslands, Fríkirkjuvegi 7 á 2. hæð. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri félagsins mun kynna afkomu þriðja ársfjórðungs 2014. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið: fjarfestatengsl@reginn.is.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/7395499fa351456298b9f99b0f1515051d

 

Um félagið

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á atvinnuhúsnæði. Félagið er hlutafélag í dreifðu eignarhaldi og skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.). Félagið tók til starfa vorið 2009.

Hægt er að nálgast árshlutareikning þriðja ársfjórðungs og kynningagögn á  www.reginn.is/fjarfestar/

Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262


Attachments

Reginn hf. - Kynning á uppgjöri  Q3-2014.pdf Reginn hf. - Fréttatilkynning Q3-2014.pdf Reginn hf. - árshlutareikningur Q3-2014.pdf