Islandsbanki hf. : Flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á útistandandi flokkum sértryggðra
skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq Iceland. Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB
15 var stækkaður um 750.000.000  kr. á ávöxtunarkröfunni 5,75% en verðtryggði
flokkurinn ISLA CBI 24 um 660.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,50%. Öllum
tilboðum var hafnað í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 20.

Heildarstærð ISLA CB 15 útgáfunnar er nú orðin 4,67 ma. kr. og ISLA CBI 24 er
orðin 9,40 ma. kr. Alls hefur Íslandsbanki gefið út sjö flokka sértryggðra
skuldabréfa samtals að upphæð 32,09 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum
bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta.  Heildareftirspurnin í útboðinu
var 2,69 ma. kr., en 52% tilboða var tekið. Stefnt er á að bréfin verði tekin
til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 4. desember næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir
alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf
þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki
skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og
gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum,
sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur
um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út
ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
    440 4752/ 844 4752.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í
    síma 844 3678.



[HUG#1874966]