Leiðrétting Marel hf. – Veiting kauprétta


Í fyrri útgáfu vantaði eitt nafn í töfluna. Það hefur nú verið leiðrétt.

Stjórn Marel hf. ákvað þann 2. desember 2014 að veita framkvæmdastjórn félagsins kauprétti á allt að 2,5 milljónum hluta í félaginu.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Er þetta í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á síðasta aðalfundi Marel í mars 2014. Allir meðlimir framkvæmdastjórnar Marel að forstjóra undanskildum fá sama magn kauprétta eða 225 þúsund.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 0,8613 á hlut [1] sem hækkar árlega um 3% (e. hurdle rate). Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða greiddar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Kaupréttirnir verða virkir í þrennu lagi, fyrst verða 60% kaupréttanna virk í apríl  2018, síðan 20% í apríl 2019 og loks 20% í apríl 2020. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október. Starfsmenn geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til ársins 2021, þegar samningarnir renna út og falla þá virkir en ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir nettó hagnað (eftir skatta og kostnað) af innleystum kaupréttum og halda þeim bréfum til starfsloka hjá Marel.

Heildarfjöldi hluta sem Marel hf. hefur nú veitt starfsmönnum sínum kauprétt að eru 16,9 milljónir og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu fimm árum er áætlaður um 346 þúsund evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Árni Sigurðsson yfirmaður stefnumótunar og þróunar tekur nú sæti í framkvæmdastjórn félagsins.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn.

 

Nafn: Staða: Nýr kaupréttur Fyrri og ónýttur kaupréttur Eignarhluti í eigin nafni og eða tengdra aðila
Anton de Weerd Yfirmaður Kjúklingaiðnaðar 225.000 665.000 0
Árni Sigurdsson Yfirmaður stefnumótunar og þróunar 225.000 0 0
Davíð Freyr  Oddsson Yfirmaður mannauðsmála 225.000 60.000 50.000
David Wilson Yfirmaður Iðnaðarseturs kjöts  
225.000
260.000 0
Gerrit Den Bok Yfirmaður Iðnaðarseturs frekari vinnslu  
225.000
335.000 0
Linda Jónsdóttir Fjármálastjóri  
225.000
182.500 0
Paul van Warmerdam Yfirmaður alþjóðlegrar framleiðslu-og aðfangastýringar  
225.000
60.000 0
Pétur Guðjónsson Yfirmaður alþjóðlegrar sölu og þjónustu  
225.000
665.000 159.430
 
Sigsteinn Grétarsson Aðstoðarforstjóri  
225.000
537.500 25.997
Sigurdur Ólason  Yfirmaður iðnaðarseturs fisks 225.000 0 0
Viðar Erlingsson Yfirmaður alþjóðlegrar nýsköpunar og þróunar  
225.000
132.500 0

[1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ OMX Iceland hf. þann 2. Desember 2014, þ.e. ISK 132,50 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands fyrir EUR/ISK: 153,83.