Breyting á samþykktum, skilmálum, ný stjórn og fjárfestingaráð


Á hluthafafundi FÍ fasteignafélags slhf., sem haldinn var fimmtudaginn 4. desember 2014, voru samþykktar tilteknar breytingar á samþykktum og skilmálum félagsins. Helsta breytingin er að tekið hefur til starfa fjárfestingaráð sem fjallar m.a. um fjárfestingakosti félagsins. Nýjar samþykktir og skilmálar félagsins eru meðfylgjandi þessari tilkynningu. Þá verður hægt að nálgast skjölin á heimasíðu félagsins, www.fifasteignir.is

Þá var ný stjórn kjörin í félaginu. Stjórnina skipa Brynjólfur J. Baldursson, Sigurður Hannesson og Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason. Varamaður er Jóhannes Ari Arason.

Þá var nýtt fjárfestingaráð kjörið í félaginu. Fjárfestingaráðið skipa Gylfi Jónasson , Björn Hjaltested, Tómas Möller, Ólafur Sigurðsson og Jón Otti Jónsson . Varamenn eru Lýður H. Gunnarsson og Óskar Örn Ágústsson.


Nánari upplýsingar veitir:
Örn V. Kjartansson
Framkvæmdastjóri FÍ fasteignafélags slhf.


Attachments

Samþykktir FÍ fasteignafélags slhf 04122014.pdf Skilmálar FÍ fasteignafélags slhf 04122014.pdf