Í 50. viku 2014 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 1.500.000 eigin hluti fyrir kr. 13.980.000 eins og hér segir: | |||||
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Vís eftir viðskipti |
8.12.2014 | 15:08 | 1.500.000 | 9,32 | 13.980.000 | 56.776.524 |
Samtals | 1.500.000 | 13.980.000 | |||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við nýja endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. desember 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar dags. 28. nóvember 2014. | |||||
VÍS hefur nú keypt samtals 1.500.000 hluti í félaginu sem samsvarar 3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 13.980.000. VÍS á nú samtals 2,27% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.502.757.040. | |||||
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 nema áætluninni verður lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. |