Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á einum víxli til 6 mánaða. Flokkurinn getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði, á 5,20% flötum vöxtum (verð: 97,4385). Tilboðum var tekið að fjárhæð 340 m. kr. að nafnvirði. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 4,64 ma. kr. Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 29. desember næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 844 3678. [HUG#1880369]