HB Grandi hf: Útistandandi viðskiptakröfur HB Granda í Rússlandi


Í ljósi frétta af gengisþróun í Rússlandi á síðustu dögum er rétt að geta þess að viðskiptakröfur HB Granda á rússneska viðskiptavini nema um 10 milljónum evra. Stærstur hluti þessara krafna er nýlega kominn á gjalddaga eða er ógjaldfallinn. HB Grandi hefur átt í löngu viðskiptasambandi við viðskiptavini sína í Rússlandi og mun leita leiða í samstarfi við þá úr þeim vanda sem nú steðjar að. Tekjur HB Granda námu 195 milljónum evra árið 2013.