Islandsbanki hf.: Sátt við Samkeppniseftirlitið


Íslandsbanki hefur gert sátt við Samkeppniseftirlitið vegna rannsóknar þess á
tiltekinni framkvæmd á greiðslukortamarkaði. Íslandsbanki var fyrstur málsaðila
til að ná sáttum við Samkeppniseftirlitið en rannsóknin náði einnig til til
Arion banka, Borgunar, Landsbankans og Valitors.

Íslandsbanki hefur skuldbundið sig til að stuðla að breytingum á þeim markaði
sem um ræðir, tryggja óhæði stjórnarmanna bankans í Borgun hf. og til greiðslu
sektar, samtals 380 milljónir króna sem hafa þegar verið gjaldfærðar. Þá mun
bankinn auka gagnsæi og vinna að hagræðingu í starfsemi bankans sem tengist
kortaútgáfu.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
440 4752.
Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
440 3678.


[HUG#1881564]