Tilkynning um hluthafafund


Boðað hefur verið til hluthafafundar HS Veitna hf. 19. janúar 2015. Fyrir fundinn verða lagðar tillögur um breytingu á fjárhagsreglu sem kveða m.a. á um að markgildi eiginfjárhlutfalls verði 40% og handbært fé á hverjum tíma ekki lægra en 500 m.kr. og einnig tillaga  um kaup á eigin hlutabréfum fyrir 2 milljarða króna með fyrirvara um hagstæða fjármögnun a.m.k. hluta kaupverðsins