Hagar hf. árshlutauppgjör Q3 // mars - nóvember 2014


Árshlutareikningur Haga hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2014/15 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 8. janúar 2015. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2014 til 30. nóvember 2014. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dóttur­félaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður.

Helstu upplýsingar:

  • Hagnaður tímabilsins nam 2.848 millj. kr. eða 5,0% af veltu.
  • Vörusala tímabilsins nam 56.763 millj. kr.
  • Framlegð tímabilsins var 24,1%.
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 4.186 millj. kr.
  • Heildareignir samstæðunnar námu 27.477 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Handbært fé félagsins nam 3.010 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eigið fé félagsins nam 13.774 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall var 50,1% í lok tímabilsins.

Vörusala tímabilsins nam 56.763 milljónum króna, samanborið við 55.790 milljónum króna árið áður. Söluaukning félagsins er 1,7%. Hækkun 9 mánaða meðaltals vísitölu neysluverðs milli rekstrarára var 2,1% og 0,8% án húsnæðis. Framlegð félagsins var 13.687 milljónir króna, samanborið við 13.527 milljónir króna árið áður eða 24,1% samanborið við 24,2%. Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 186 milljónir króna eða 2,0% milli ára en kostnaðarhlutfallið hækkar úr 16,8% í 16,9%.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 4.186 milljónum króna, samanborið við 4.236 milljónir króna árið áður. EBITDA lækkar um 1,2% milli ára og var EBITDA framlegð 7,4% en 7,6% árið áður.

Hagnaður tímabilsins fyrir skatta nam 3.560 milljónum króna, samanborið við 3.475 milljónir króna árið áður. Hagnaður eftir skatta nam 2.848 milljónum króna á tímabilinu, sem jafngildir 5,0% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 2.773 milljónir. Hagnaður eftir skatta hækkar um 2,7% milli ára.

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 27.477 milljónum króna. Fastafjármunir voru 13.183 milljónir króna og veltufjármunir 14.294 milljónir króna. Þar af voru birgðir 6.100 milljónir króna en birgðir voru 6.432 milljónir króna ári áður.

Eigið fé félagsins var 13.774 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 50,1%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 13.702 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 4.535 milljónir króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins í lok tímabilsins voru 1.425 milljónir króna en 1.957 milljónir króna voru greiddar inn á langtímalán félagsins umfram lánssamning á tímabilinu.

Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 3.055 milljónum króna, samanborið við 2.437 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 625 milljónir króna og fjármögnunarhreyfingar 3.563 milljónir króna. Í lok júní var greiddur arður til hluthafa að fjárhæð 1.172 milljónir króna. Handbært fé í lok tímabilsins var 3.010 milljónir króna, samanborið við 2.514 milljónir króna árið áður.

  

Framtíðarhorfur:

Rekstur samstæðunnar á þriðja fjórðungi rekstrarársins 2014/15 er í takti við áætlun félagsins. Hægt hefur á söluvexti sem skýrist aðallega af lágri verðbólgu.  Gengi krónunnar gagnvart helstu viðskiptamyntum félagsins hefur styrkst á milli ára og hefur sú styrking að fullu skilað sér í verðlagi til viðskiptavina, eins og sjá má í álagningu félagsins.   Nokkur óvissa er um verðlagsþróun næstu mánuði og misseri m.a. vegna óvissu um niðurstöðu kjarasamninga og gengisþróun.

Félagið hefur haft í forgangi að greiða niður vaxtaberandi skuldir og að greiða arð. Nú er svo komið að skuldastaða félagsins gefur tilefni til áherslubreytinga. Stjórn félagsins mun fyrir næsta aðalfund kynna breyttar áherslur, þó svo að upphafleg arðgreiðslustefna sé óbreytt og taki áfram tillit til fjögurra meginþátta, þ.e. niðurgreiðslu vaxtaberandi lána, arðs, fasteignafjárfestinga og kaupa á eigin bréfum.

Um áramótin varð umfangsmikil skattkerfisbreyting sem tók til neðra og efra þreps virðisaukaskatts, auk vörugjalda.  Vörugjöldin voru um 1 milljarður króna af veltu félagsins án virðisaukaskatts á síðasta almanaksári.  Félagið leggur áherslu á að skila lækkun vörugjalda að fullu í verðlagi til viðskiptavina sinna eins fljótt og kostur er.  Félagið lækkaði m.a. verð á birgðum af eigin innflutningi strax um áramótin.  Lækkunin kostar félagið um 30 milljónir króna.  

Í desember undirritaði félagið kaupsamning um hluta fasteignarinnar að Skipholti 11-13 í Reykjavík. Keyptur hluti fasteignarinnar er um 987 m2 og mun Bónus opna verslun í húsnæðinu á árinu.

Eins og fram hefur komið opnaði alþjóðlega tískuvörukeðjan F&F í verslun Hagkaups á 2. hæð í Kringlunni í byrjun nóvember. Móttökurnar voru góðar og hefur rekstur verslunarinnar gengið vel. Á nýju ári mun F&F opna í fleiri Hagkaupsverslunum en áætlað er að næsta verslun opni í Garðabæ í mars nk.

 

Fjárhagsdagatal 2014/15:

 

4. ársfjórðungur (1. mars – 28. feb): 12. maí 2015

Aðalfundur 4. júní 2015                   

 

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.


Attachments

Hagar árshlutareikningur 30 11 2014 m nöfnum.pdf Fréttatilkynning Hagar árshlutareikningur 301114.pdf