Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 900 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 780 milljónir kr. á 5,25% flötum vöxtum. Stefnt er á að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Íslandi í lok janúarmánaðar.


Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.