Áhrif gengisbreytinga á stöðu Orkuveitu Reykjavíkur


Orkuveita Reykjavíkur hefur í kjölfar 9 mánaða uppgjörs framkvæmt áhættuvarnarsamninga með undirliggjandi fjárhæð 36 milljarða ISK. Samningarnir breyta greiðsluflæði úr CHF, SEK, GBP og JPY yfir í USD. Gengisbreytingar að undanförnu hafa haft jákvæð áhrif á efnahag fyrirtækisins, sem nema um 2,8 milljörðum króna á efnahag, án tillits til greiðsluflæðis, frá 30. september 2014 til 16. janúar 2015.

Fyrirtækið á gjaldeyri fyrir afborgunum í erlendri mynt a.m.k. næstu 6 mánuði.