Í 3. viku 2015 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 3.000.000 eigin hluti fyrir kr. 27.690.000 eins og hér segir: | |||||
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Vís eftir viðskipti |
16.1.2015 | 14:25 | 3.000.000 | 9,23 | 27.690.000 | 67.276.524 |
Samtals | 3.000.000 | 27.690.000 | |||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við nýja endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. desember 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar dags. 28. nóvember 2014. | |||||
VÍS hefur nú keypt samtals 12.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 22% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 110.885.000. VÍS á nú samtals 2,69% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.502.757.040. | |||||
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 nema áætluninni verður lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. |