Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 þann 27. janúar 2015. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 30. janúar 2015.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 840.000.000 á bilinu 3,30% - 3,48%.  Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 380.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,40%. Útistandandi fyrir voru ISK 16.374.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 16.754.352.565

Nánari upplýsingar veitir:
Egill Skúli Þórólfsson
Sími: 515 4947
e-mail: egill@lanasjodur.is