Nýherji - Heildarhagnaður ársins 259 mkr


Helstu upplýsingar

  • Heildarhagnaður ársins nam 259 mkr og 110 mkr á fjórða ársfjórðungi [2013:Heildartap 1.608 mkr, Q4 2013: Heildartap 496 mkr]
     
  • EBITDA nam 827 mkr (7,2%) á árinu 2014 og 241 mkr (7,3%) á fjórða ársfjórðungi [2013:302 mkr (2,8%), Q4 2013:58 mkr (1,9%)]
     
  • Rekstrarhagnaður nam 528 mkr fyrir árið í heild og 167 mkr á fjórða ársfjórðungi [2013: tap 146 mkr, Q4 2013 tap 157 mkr]
     
  • Vöru- og þjónustusala á árinu nam 11.572 mkr og 3.315 mkr á fjórða ársfjórðungi [2013:10.940 mkr, Q4 2013: 3.052 mkr]
     
  • Framlegð nam 3.012 mkr (26,0%) á árinu 2014 og 840 mkr (25,3%) á fjórða ársfjórðungi [2013: 2.430 mkr (22,2%), Q4 2013:655 mkr (21,5%)]
     
  • Jákvæð rekstrarafkoma var hjá öllum félögum samstæðunnar á árinu
     
  • Rekstur TEMPO skilinn frá TM Software ehf.
     
  • TM Software keypti í desember fjárhagslausnina FOLIO sem hluti af lausnaframboði TEMPO
     
  • Nýherji er „Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum“ að mati Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við HÍ

 

 Lykiltölur: Sjá fréttatilkynningu í viðhengi.
 

Finnur Oddsson, forstjóri:

„Rekstur samstæðu Nýherja gekk vel á árinu 2014. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 827 milljónum, eða um 7,2% af veltu. Hagnaður eftir skatta var 259 milljónir, sem svarar til 31% arðsemi á eigið fé. Á undanförnum árum hefur rekstur Nýherja markast af miklum sveiflum sem torvelda samanburð milli ára. Engu að síður er ljóst að síðasta rekstrarár er eitt það besta í ríflega 20 ára sögu félagsins og mjög jákvæður viðsnúningur frá árinu 2013.

Góð niðurstaða ársins 2014 er ánægjuleg staðfesting þess að nýjar áherslur í rekstri Nýherja eru til þess fallnar að skapa verðmæti fyrir eigendur, viðskiptavini og samfélagið allt. Þótt stór skref hafi verið stigin á síðasta ári, er umtalsverð vinna eftir, til að treysta afkomu og bæta eiginfjárstöðu félagsins, sem er of lág. Þar horfum við til áframhaldandi hagræðingar í rekstri og breytinga á félagaskipan Nýherja. Aðskilnaður rekstrar TEMPO frá TM Software ehf. er mikilvægt skref í þessari vegferð. Við náum að skerpa áherslur í sérhæfðri hugbúnaðarþróun á vegum TM Software. Um leið verður TEMPO vörumerkið sýnilegra og fleiri tækifæri verða til samstarfs við utanaðkomandi aðila um að styðja við hraðan vöxt, m.a. með tengslamyndun og fjármögnun á vöruþróun og markaðsstarfi.“

 

Kynningarfundur 30. janúar klukkan 14:00

Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 30. janúar næstkomandi í höfuðstöðvum félagsins að Borgartúni 37 í Reykjavík og hefst hann kl 14:00. Á fundinum mun Finnur Oddsson forstjóri kynna afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.

 

Fjárhagsdagatal fyrir 2015:

29. janúar 2015: Ársuppgjör ársins 2014.

13. febrúar 2015: Aðalfundur ársins 2014.

29. apríl 2015: Uppgjör 1. ársfjórðungs ársins 2015.

26. ágúst 2015: Uppgjör 2. ársfjórðungs og fyrstu sex mánaða ársins 2015.

28. október 2015: Uppgjör 3. ársfjórðungs og fyrstu níu mánaða ársins 2015.

28. janúar 2016: Uppgjör 4. ársfjórðungs og ársins 2015.

26. febrúar 2016: Aðalfundur ársins 2015.

 

Nánari upplýsingar veita
Finnur Oddsson, forstjóri, (Sími 862 0310 eða fo@nyherji.is) og
Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs (Sími 825 9001 eða
gp@nyherji.is).

 

 

 

 

 


 

 


Attachments

Nýherji hf. ársreikningur 31.12.2014.pdf 2015.01.29 Fréttatilkynning ársuppgjör Nýherja 2014.pdf