Tillaga um ráðstöfun hagnaðar
Tillaga stjórnar eins og hún kemur fram í áritum á reikninga félagsins:
„Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur út arður til hluthafa árið 2015. Vísað er til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.“
Tillaga um stjórnarlaun
Aðalfundur Nýherja hf. haldinn 13. febrúar 2015 samþykkir að laun stjórnarformanns verði kr. 390.000 á mánuði, stjórnarmanna kr. 130.000 á mánuði.
Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum skv. 55. grein hlutafélagalaga
Aðalfundur Nýherja haldinn 13. febrúar 2015 samþykkir heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en samningur er gerður.
Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir.
Með samþykkt tillögu þessarar fellur úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á síðasta aðalfundi félagsins.